Hvaða rugl er þetta?! Maður hefur rekist á margar vitlausar síður á Facebook en þetta slær eiginlega allt út - milljón Íslendinga?! WTF?! Fór þetta fólk ekki í skóla? Veit það ekki að Íslendingar eru ca. 320.000?
Síðan væri líka mun eðlilegra að setja upp Group fyrir svona dæmi en ekki Fan page.
OK, maður á ekki að vera pirra sig á svona vitleysu… en þetta var bara of mikið.
I give you: Crazy Sprinkler Lady. Þetta er bara of gott… fór þessi kona ekki í skóla? Þetta er alveg major conspiracy theory hjá henni - við þurfum klárlega að kanna þetta betur. Ég meina, regnbogar svona nálægt jörðinni?! Þetta er ekki eðlilegt… ríkistjórnin er klárlega að gera einhverjar leynilegar tilraunir sem mun hafa skaðleg áhrif á okkur og jörðina.
haha, hvaða snillingi datt þetta í hug? Um að gera - kenna krökkum að það er allt í lagi að borða litað kornflakes eitthvað sem lítur út eins og Lego kubbar og síðan þegar krakkinn sér alvöru Lego þá sér hann bara mat og byrjar að borða það með bestu lyst ;)
Jahá… sumir ættu kannski að taka ökuprófið aftur? Þetta er alveg rosalegt - ekki örvænta þótt bíllinn hverfi í smástund, það fer allt að gerast í kringum 01:44
Er þetta ekki eitthvað djók?! Ég var að reyna tékka á video á Facebook og þá fékk ég þessi skilaboð:
“Flash Player upgrade required Flash Player version 9.0.47 is required to view this content. Your current version is 9.0.45”
Er það s.s. málið? Ég get engan veginn horft á þetta video (tölvan myndi örugglega springa) af því að mig vantar fix fyrir einhvern minor bug? Þetta auka 0.0.2 er greinilega mjög merkilegt…
Alltaf gaman af þessari blessuðu tækni :)
Af því að það er alltaf eitthvað sniðugt á netinu...
Flottar myndir - Fyndin video - Fyndnar myndir - Flott video - Góð tónlist og allt annað sem ég rekst á sem er áhugavert/fyndið/flott/sjokkerandi...