I am not taxi
[Flash 9 is required to listen to audio.]
14 plays

Sigur Rós - Gobbledigook

Lag af nýjustu plötunni hjá Sigur Rós - og eins og Coldplay gerði þá gefa þeir eitt lag frítt. Það er hægt að ná í MP3 lagið hérna - þar er líka hægt að horfa á video-ið sem er.. ja, arty :) ..en nokkuð flott.

Það er svolítið öðruvísi hljómur í þessu en á fyrri plötum - minnir mig svolítið á einhver indie rokk lög sem maður hefur verið að hlusta á síðustu mánuði (MGMT?). Þessi gítar (og lala kórinn í bakgrunni) gerir lagið líka hressara en mörg týpísk Sigur Rósar lög. En flott lag - ég veit ekki hvort harðir aðdáendur muni verða brjálæðir að þeir séu að breyta svona til og saka þá um að vera orðnir mainstream ;)

[Flash 9 is required to listen to audio.]
9 plays

Din stalker - Ohne Zuschlag

Kúl lag sem ég náði í á Last.fm - þetta er Hannes úr Slagsmålsklubben með solo project. Fínasta elektró… er jafnvel að fíla þetta örlítið meira en það sem ég hef heyrt frá Slagsmålsklubben þótt þeir séu líka gífurlega hressir :)

Hannes kallar sig s.s. Din stalker og það er hægt að hlusta á fleiri lög á MySpace síðunni hans.

[Flash 9 is required to listen to audio.]
30 plays

tracks:

kiamatthews:

Robyn - Cobrastyle

A remake of a 2004 Reggae/SKA song by the Teddybears. Why did it take so long for this album to hit the states? Stop keeping all the good shit tucked away in Scandanavia!

Áhugavert… cover af einu af uppáhalds lögunum mínum síðustu mánuði - kannski ekki alveg eins hresst, en skemmtileg útgáfa… Hægt að hlusta á upprunanlega lagið á Muxtape-inu mínu. Það er svosem ekkert skrítið að Robyn skuli taka þetta lag sem er örugglega þekktasta lag Teddybears - Klas Åhlund frá Teddybears var mikið að vinna með henni við nýjustu plötu hennar.