xkcd - Suggestions haha… Já, þetta “Reconnect with…” á Facebook er frekar fyndið. Maður fær þetta yfirleitt á fólk sem er búið að beila á FB, búið að missa áhugann á þessu.
themattsmith:(via)
haha… annað Facebook fail :)
Ég held að það sé alveg business í því að halda “Hvernig skal nota Facebook” námskeið ;)
hmmm….
Blogg, já einmitt. Ég ætla að blogga aðeins hérna. Hvað bloggar fólk um? Ég veit! hvað það er að fara að gera í kvöld eða gerði í kvöld. Það eru síður þarna úti sem eru gerðar til þess að maður geti látið fólk vita hvað maður er að gera. Síður eins og facebook hafa orðið gjörsamlega óþolandi vegna þess að það eru allir að segja manni hvernig þeir hafa það. “ég er svo þreytt” frábært! Einhver frænka og vinir segja þetta svo oft að þegar einhver raunverulega segir eitthvað af viti þá er það horfið í hafsjó af smáskilaboðum um hvað allir hafa það skítt.
Þó eru nokkrir sem ég væri í raun til í að vita hvort þeir séu þreyttir eða svangir, vegna þess að þeir segja skemmtilega frá því og maður hittir þá oftar. Þess vegna þarf maður að skrá sig á aðra síðu, eins og ég gerði með twitter, og hafa þar bara þá sem manni er í raun sama um hvað eru að gera með svona skömmum fyrirvara. Frænkur og gamlir skólafélagar geta sent inn skeyti ef þeir ná árangri í skóla, vinnu eða barneignum, annars . . I don’t care
Þess vegna ætla ég að segja eitthvað ógeðslega sniðugt hér inni. . . Í kvöld ætla ég að læra.
Já, alveg sammála. Maður nennir varla að fara á Facebook af því að það er svo mikið af rugli og kjaftæði - en það eru vissir aðilar sem maður vill endilega fylgjast með. Þá er gífurlega heppilegt að geta sett upp svona groups fyrir þá helstu.
Facebook fail :)
Sumir þyrftu að fara á námskeið í hvernig skal nota Facebook ;)
Skemmtilegt líka að sjá “Relationship Status: Engaged”.
OK, það varð allt brjálað þegar fólk fattaði að Facebook var búið að breyta Terms of Use samningnum þannig að Facebook á allt efni sem þú setur á Facebook og geta gert hvað sem er við það, selt það, breytt því, whatever - jafnvel þótt þú eyðir Facebook account-inum þínum. Þeir hafa greinilega bakkað aðeins með þetta, í bili… þangað til að þeir geta samið nýjan samning sem er aðeins óljósari þannig að fólk fattar ekki strax hvað Facebook er að fara illa með það ;)
Þetta minnir mig svolítið á Beacon skandalann - það er eins og þeir reyni bara að fara eins langt og þeir hugsanlega geta án þessa að fólk verði öskuillt. Og ef fólk verður brjálað þá bakka þeir örlítið en koma síðan aftur með aðeins breytta útgáfu til að sjá hvort að hún virki…
En samningurinn sem maður þarf að samþykkja til að geta notað Facebook er ennþá rugl. Facebook á ennþá allt stöffið sem þú setur þarna inn, nema þú eyðir Facebook account-inum þínum. Þannig að ég ætla halda áfram að forðast það eftir fremsta megni að setja myndir eða video á Facebook - af því að, þú veist, þeir gætu náttúrulega selt myndirnar mínar á 100.000 kr. stykkið ;)

Found on Facebook’s help page. (via Jacob)
haha… já, greinilega margir sem eru ekki að sjá tilganginn með facebook.
Level 7 of 12 Complete
Sorry, but you need 37500 points to continue to the next level!
You scored 37152 points on World Cities (Hard).
- You’ve got to be freaking kidding me?! Mig vantaði 348 stig, damn it!
Your Final score: 236,981
Your Final level: 7
Your Traveler IQ: 99
- Hvað getur þú náð mörgum stigum?
Hmm… síðan er líka Facebook app - kannski að maður tékki á því.





