I am not taxi
OK, það varð allt brjálað þegar fólk fattaði að Facebook var búið að breyta Terms of Use samningnum þannig að Facebook á allt efni sem þú setur á Facebook og geta gert hvað sem er við það, selt það, breytt því, whatever - jafnvel þótt þú eyðir Facebook account-inum þínum. Þeir hafa greinilega bakkað aðeins með þetta, í bili… þangað til að þeir geta samið nýjan samning sem er aðeins óljósari þannig að fólk fattar ekki strax hvað Facebook er að fara illa með það ;)
Þetta minnir mig svolítið á Beacon skandalann - það er eins og þeir reyni bara að fara eins langt og þeir hugsanlega geta án þessa að fólk verði öskuillt. Og ef fólk verður brjálað þá bakka þeir örlítið en koma síðan aftur með aðeins breytta útgáfu til að sjá hvort að hún virki…
En samningurinn sem maður þarf að samþykkja til að geta notað Facebook er ennþá rugl. Facebook á ennþá allt stöffið sem þú setur þarna inn, nema þú eyðir Facebook account-inum þínum. Þannig að ég ætla halda áfram að forðast það eftir fremsta megni að setja myndir eða video á Facebook - af því að, þú veist, þeir gætu náttúrulega selt myndirnar mínar á 100.000 kr. stykkið ;)

blog comments powered by Disqus