IMDb Top 250 listinn - hversu mikill bíómyndafíkill ertu? Ég hakaði við þetta í flýti - örugglega að gleyma nokkrum myndum sem ég er búinn að sjá, síðan voru sumar sem ég var ekki alveg viss hvort ég hafði séð (ef ég hef séð þær er mjög langt síðan) þannig að ég hakaði ekki við þær. Ég held ég þurfi greinilega að horfa á fleiri kvikmyndir… og eldgamlar, artý myndir ef ég vil fá hærra skor í þessu.
(via @jresig)