Þegar ég setti inn þetta nýja theme þá datt út Streampad spilarinn en ég ákvað að setja hann aftur inn núna. Ég tók eftir að nú er hægt að tengja Streampad spilarann við last.fm - s.s. scrobbla það sem maður hlustar á yfir í last.fm prófílinn sinn. Nokkuð kúl.
Þegar maður er byrjaður að spila eitthvað lag (með því að smella á “Click to play all audio posts”) þá getur maður smellt á Open Profile kallinn:

Þar er last.fm flipi þar sem maður getur loggað sig inn á last.fm
Ágætlega hentugt að hafa svona spilara til að renna í gegnum öll lögin sem maður hefur póstað hérna. Mér sýnist þetta ekki hægja neitt sérstaklega á síðunni.