I am not taxi

Nokkuð gott session hjá Boys Noize. Fann þetta á þessu forum - og verð bara að taka þá á orðinu að þetta sé upptaka frá Sónar 2008 tónleikunum hans - en þetta er engan veginn nærri því eins og að upplifa þetta live, gríðarleg stemmning þarna í 10.000 manna rave-i. Ég fann þetta þegar ég var að kanna hvort það væri satt að Steve Aoki hefði virkilega verið að spila í Barcelona þegar ég var þarna… og svo virðist vera. Þetta var eitthvað off-venue og virðist hafa verið eitthvað exclusive/limited capacity - en hefði verið gaman að reyna sjá hann. Þeir linkuðu í settið hjá Steve Aoki - part 1 og part 2 [virðist vera upptaka fyrir spænskt útvarp… part 2 gæti verið í ruglinu].

Hérna er linkurinn sem þeir póstuðu á þessum þræði á Boys Noize settið - en það er slatti af auglýsingum og pop-ups þar þannig að ég upload-aði þessu á senduit (linkurinn rennur reyndar út eftir viku).

blog comments powered by Disqus