OK Go - This Too Shall Pass - RGM version (via OkGo)
Það eru náttúrulega allir að pósta þessu (á Facebook alla vega) en maður vill líka vera með. Mjög töff video. Mér fannst skemmtilegt að þeir voru allir ataðir í málningu - sýndi að þetta var ekki fyrsta takan og maður beið spenntur að sjá hvenær og hvernig málningu væri skvett á þá. Hefðu verið mistök ef þeir hefðu alltaf skellt sér í nýja galla eftir hverja töku.
Maður hefur náttúrulega séð nokkur svona svipuð video - man t.d. eftir einni bílaauglýsingu. En þetta var mjög íburðamikið, endalaust mikið af græjum - og að fara á milli hæða, mjög kúl. Minnti mig á The Incredible Machine tölvuleikinn sem maður var að leika sér í þegar maður var lítill.
Þetta var “one shot” (ekkert klippt) og þeir þurftu að taka þetta upp 60 sinnum (yfir 2 daga) til að ná þessu (skv. Wikipedia).
Nice, síðan eru líka making of videos.
-
brettimusprime liked this
-
hannes posted this