Endalaus snilld! Red Alert var einn af uppáhalds tölvuleikjunum mínum í langan tíma. Ég var að fíla hann svo mikið að ég bjó til vefsíðu í kringum hann - með alls konar upplýsingum, tips, easter eggs, maps, MP3 lögum og öðru stöffi. Þetta var svona fyrsta alvöru vefsíðan sem ég gerði, á hinu herrans ári 1997. Lagði töluverða vinnu í vefinn og hélt henni til í nokkur ár. Hún var nokkuð vinsæl alveg þangað til að GeoCities lokaði á síðasta ári - ekki slæmt að fá 50-80 heimsóknir á dag á síðu sem maður hafði ekki snert að ráði í mörg ár.
(via @gakera)