self portrait with hayden panettiere (via Noah K)
Algjör skandall að Bjössi hafi póstað þessu video og linkað í Noah Kalina video-ið everyday áður en ég gerði það ;) Ég ætlaði mér einmitt alltaf (en það gleymdist af einhverjum ástæðum) að pósta “everyday” video-inu og síðan stuttu seinna linka í þetta skemmtilega everyday/celebrity sett á flickr sem myndin að ofan er úr. Frekar fyndið sett - hann er með alls konar celebrities þarna og alltaf með sama frosna svipinn og í myndbandinu - nema kannski þegar Jenna Jameson er að faðma hann, þá er eins og hann brosi bara örlítið ;) Flavor Flav myndin er líka nokkuð skondin.
En ég bjóst nú svosem alveg við því að fólk sem tékkar á þessu bloggi hafði séð þetta video - það er nú einu sinni búið að horfa á þetta næstum 9,5 milljón sinnum.
Síðan er alveg fullt af liði búið að herma eftir honum - baseball auglýsing, Microsoft auglýsing, grínútgáfur…
Noah er ennþá að taka mynd á hverjum degi - hægt að sjá nýjustu myndirnar hérna. En hann tekur alveg myndir af öðru en sjálfu sér - og þær eru margar virkilega flottar, eins og þessi hérna.
