Sigur Rós - Gobbledigook
Lag af nýjustu plötunni hjá Sigur Rós - og eins og Coldplay gerði þá gefa þeir eitt lag frítt. Það er hægt að ná í MP3 lagið hérna - þar er líka hægt að horfa á video-ið sem er.. ja, arty :) ..en nokkuð flott.
Það er svolítið öðruvísi hljómur í þessu en á fyrri plötum - minnir mig svolítið á einhver indie rokk lög sem maður hefur verið að hlusta á síðustu mánuði (MGMT?). Þessi gítar (og lala kórinn í bakgrunni) gerir lagið líka hressara en mörg týpísk Sigur Rósar lög. En flott lag - ég veit ekki hvort harðir aðdáendur muni verða brjálæðir að þeir séu að breyta svona til og saka þá um að vera orðnir mainstream ;)