I am not taxi

Frekar kúl þjónusta - Muxtape. Var að launch-a í vikunni - það voru reyndar smá byrjunarörðuleikar af því að þetta sprakk alveg - fáránlega vinsælt: 2000 skráðir notendur fyrstu 7 klst og 8685 notendur eftir fyrstu 24 klst. Ég frétti af þessu í gegnum Tumblr samfélagið og skráði mig nokkrum (~2-3) klst. eftir að þeir opnuðu fyrir skráningu.

Á tímabili gat maður ekki hlustað á muxtapes og ég gat ekki upload-að nýjum lögum (þess vegna póstaði ég þessum link ekki fyrr)… En þetta er mjög einföld þjónusta, einfalt og snyrtilegt útlit - greinilega töluvert stílað á iPhone notendur - ekki vitlaust, vera með wifi tengdan iPhone einhvers staðar og maður vill hlusta á tónlist - fara bara á eitthvað random muxtape.

Þetta eru bara alls konar lög sem ég hef verið að hlusta á nýlega… ég á pottþétt eftir að setja inn ný lög bráðlega - og þar sem maður getur bara verið með 12 lög í einu þá neyðist ég til að henda einhverjum út… síðan samkvæmt reglunum þá má maður bara búa til eitt muxtape. Það væri kúl ef maður gæti búið til mismunandi muxtape fyrir mismunandi stemmningu/tækifæri - en hver fylgir reglum svo sem ;) Mér sýnist nokkrir vera nú þegar búnir að brjóta þessa reglu…

En fyrir RSS fíkla þá er nýbúið að bæta við fóður fídus - þannig að þá ætti fólk að fá að vita þegar ég skipti út og bæti við nýjum lögum.

Eins og ég sagði, sniðug græja - en það kæmi ekkert geðveikt mikið á óvart ef einhverjir útgáfurisar myndu láta loka þessu - þótt það sé ekki hægt að download-a lögum í gegnum þetta. Þegar maður er að setja inn lög stendur “By uploading a song you agree that you have permission to let Muxtape use it.” - svona svipað og er á Tumblr. En eins og á Tumblr þá sýnist mér þetta nú bara vera satt í 0,001% tilvika ;) — En fyrstu 2 lögin sem ég setti inn voru Griffin lög - og ég hef nú fullt leyfi til að senda þau inn :)

OK, ég held að þetta sé lengsta description fyrir link, ever. Segi þetta gott í bili - en endilega kommenta þegar þið eruð búin að búa til ykkar eigið muxtape ;)

Viðbót: Svona ef fólk var ekki búið að fatta það þá er hægt að ýta á Enter til að pása/afpása og nota pílurnar til að fara fram og tilbaka í listanum. Síðan er líka hægt að smella á lagið til að pása/afpása.

blog comments powered by Disqus