Þetta er tekið af matseðlinum í mötuneyti HR á Höfðabakka:
Íslensk kjötsúpa án kjöts
350/-
Kannski er það bara ég, en er kjötsúpa án kjöts ekki bara eins og gin og tónik án gins?
Ég bara spyr.
haha… gaurinn sem sér um HR mötuneytið slær alltaf í gegn :) Góðar minningar - ekki skrítið að maður sniðgekk nánast alfarið mötuneytið síðustu annirnar. Síðan er víst ekkert mál að fá ábót - “sjálfsagt mál” - en þegar þú ferð og ætlar að biðja um ábót þá rukkar hann þig fullt verð fyrir aðra máltíð ;)