I am not taxi

Ég trúi því ekki að ég hafi ekki tekið eftir þessari mynd fyrr. Ég var nú búinn að heyra einhverja rumors… en það er búið að vera reyna búa til þessa mynd í mörg ár (eiginlega alveg síðan Fight Club kom út held ég) - þannig að ég vissi s.s. ekki hvort að það væri byrjað að taka hana upp, hvað þá að hún er bara að koma í bíóhús 28.8.2008. Ég þyrfti eiginlega að skella mér á SXSW til að sjá hana sem fyrst ;)

Það verður áhugavert að sjá hvernig mynd #2 sem er byggð á bók eftir Chuck Palahniuk mun ganga í bíóhúsunum… einhvern veginn efast ég að hún verði eins mikið hit og Fight Club. En ég er sáttur með að Sam Rockwell leiki í henni - hann stendur sig örugglega vel.

blog comments powered by Disqus