OK, það var mikið… Eins gott að þetta drógst ekki mikið lengra.
En ég er með fullkomna lausn á “ég get ekki beðið þangað til janúar 2009 til að sjá 24” vandamálinu… ef ég man rétt var 24 alltaf sýnt á mánudögum - það eru 15 mánudagar þangað til að sumarið byrjar (ef við segjum að þeir vilji ekki sýna 24 í júní). Nú er Fox svolítið mikið fyrir að hafa fyrstu og síðustu þættina tvöfalda… hvernig væri bara að hafa tvöfalda þætti nokkrum sinnum? Til að troða 24 þáttum í 15 pláss þá þyrfti bara að hafa 9 svona tvöföld kvöld. Það gengur alveg, er það ekki? Þeir þurfa bara að drífa sig að taka upp restina af þáttunum sem á eftir að gera.