Áhugvert band frá Brooklyn, NY. Skemmtilega hressandi indie. Kæmi mér ekki á óvart ef þessir myndu rata á Iceland Airwaves næsta haust. Við skulum sjá til.
Alright! Ég plataði Bjössa til að búa til svona Tumblr blogg - hann kemur sterkt inn með hressu indie sveitina MGMT að spila lagið Time to Pretend hjá David Letterman.
Ég náði líka að plata Gumma til að setja upp Tumblr blogg fyrir hype machine daglögin sín sem hann var alltaf að plögga á MSN.
Bjössi og Gummi eru fáránlega svalir. Af hverju ert þú ekki búinn að setja upp þitt eigið Tumblr blogg? Það er fáránlega auðvelt.
Skemmtilegt að sjá að hljómsveitir eru byrjaðar að nota svona web 2.0 nöfn (eins og flickr, tumblr, twttr…) - MGMT er skv. wikipedia “formerly known as The Management” og síðan er MSTRKRFT sem er lesið Master-kraft ..og örugglega fleiri bönd sem ég man ekki eftir í augnablikinu.