I am not taxi
Kvöldið

haukur:

hmmm….

Blogg, já einmitt. Ég ætla að blogga aðeins hérna. Hvað bloggar fólk um? Ég veit! hvað það er að fara að gera í kvöld eða gerði í kvöld. Það eru síður þarna úti sem eru gerðar til þess að maður geti látið fólk vita hvað maður er að gera. Síður eins og facebook hafa orðið gjörsamlega óþolandi vegna þess að það eru allir að segja manni hvernig þeir hafa það. “ég er svo þreytt” frábært! Einhver frænka og vinir segja þetta svo oft að þegar einhver raunverulega segir eitthvað af viti þá er það horfið í hafsjó af smáskilaboðum um hvað allir hafa það skítt.

Þó eru nokkrir sem ég væri í raun til í að vita hvort þeir séu þreyttir eða svangir, vegna þess að þeir segja skemmtilega frá því og maður hittir þá oftar. Þess vegna þarf maður að skrá sig á aðra síðu, eins og ég gerði með twitter, og hafa þar bara þá sem manni er í raun sama um hvað eru að gera með svona skömmum fyrirvara. Frænkur og gamlir skólafélagar geta sent inn skeyti ef þeir ná árangri í skóla, vinnu eða barneignum, annars . .  I don’t care

Þess vegna ætla ég að segja eitthvað ógeðslega sniðugt hér inni.   .    .   Í kvöld ætla ég að læra.

Já, alveg sammála. Maður nennir varla að fara á Facebook af því að það er svo mikið af rugli og kjaftæði - en það eru vissir aðilar sem maður vill endilega fylgjast með. Þá er gífurlega heppilegt að geta sett upp svona groups fyrir þá helstu.

blog comments powered by Disqus