Þetta er með flottustu og frumlegustu signup formum sem ég hef séð. Mjög hressandi að sjá eitthvað annað en þetta klassíska dálka útlit.
Síðan eru einhverjir töfrar í gangi í bakgrunni - ég gaf þeim minimal upplýsingar (eins og sést á þessu einfalda formi) en þeir náðu að búa til nokkuð góðan prófil fyrir mig sjálfkrafa. Birtu íslenska fánann, náðu í mynd af mér (í gegnum Twitter, hefðu reyndar getað gert það með Gravatars) og linkuðu í aðrar síður sem ég er með (Elsewhere): Kvikmyndagagnrýnina, Twitter og Flickr (mig grunar einhvern veginn að þeir hafi notað XFN til að finna þessa linka). En mjög kúl, svona á að nota automation og þessar tengingar sem eru út um allt netið.
-
hannes posted this
